Fara beint í efni
Ring Road Cars

Skilmálar og skilyrði

Leiguskilmálar á íslensku

Enska útgáfan er lagalega bindandi og gengur framar þeirri íslensku.

Gildir frá 1. ágúst 2026, síðast uppfært 8. október 2026. Um hverja bókun gildir sú útgáfa sem var í gildi þegar hún var gerð (gr. 47); fyrri útgáfur fást sé þess óskað.

Helstu atriði

Helstu atriðin á mannamáli. Það eru greinarnar hér að neðan sem gilda; hver tengill vísar á viðkomandi grein.

Aldur og ökuskírteini
Ökumenn þurfa að hafa náð 20 ára aldri; fyrir jepplinga, 4x4-bíla og 9 manna bíla er lágmarkið 25 ár, en við getum leyft ökumönnum á aldrinum 20–24 ára að leigja þá gegn gjaldi fyrir unga ökumenn, 15 € á dag. Allir ökumenn þurfa áþreifanlegt ökuskírteini sem þeir hafa haft í a.m.k. eitt ár. (gr. 2, 3)
Kort og heimild
Taktu með áþreifanlegt kredit- eða debetkort á nafni leigutaka. Ekkert tryggingarfé við afhendingu: við tökum heimild á kortið fyrir sjálfsáhættunni og fellum hana niður eftir skil — 1.000 € með BASIC + SCDW sem fylgir bókunum á vefnum okkar eða með PLUS, 3.000 € með BASIC einu eða án CDW, og engin heimild með MAX. Tjón sem enginn verndarkostur nær til er gjaldfært að fullu, og eftir skoðun við skil má taka heimild fyrir allt að 10.000 € vegna þess. (gr. 7)
Eldsneyti
Fullt í fullt: fylltu á innan 5 km frá skilastað. Eldsneyti sem vantar er gjaldfært fyrir hvern byrjaðan áttunda hluta tanks á því lítraverði sem N1 birtir fyrir stöð sína að Flugvöllum 27 í Reykjanesbæ þann dag sem við fyllum á bílinn, auk 30 € áfyllingargjalds. (gr. 11(c), 40(j))
Akstur
Ótakmarkaður akstur í öllum bókunum á vefnum okkar. Bókun annars staðar með takmörkuðum akstri felur í sér 100 km á leigudag nema annað sé tekið fram, og hver aukakílómetri kostar 0,35 €. (gr. 24)
Vetrardekk
Allir bílar eru á vetrardekkjum frá 1. nóvember til 14. apríl, án aukagjalds. (gr. 1)
Afbókun
Afbókaðu a.m.k. 48 klst. fyrir afhendingu og þú færð fulla endurgreiðslu, nema þú hafir valið óendurgreiðanlegt verð. Við afbókun með styttri fyrirvara, eða ef þú mætir ekki, er ekkert endurgreitt, og ef þú valdir að greiða síðar má gjaldfæra sömu upphæð. Hver breyting á bókun kostar 10 €. (gr. 8)
Gjöld
Þjónusta sem þú velur, svo sem aukaökumaður á 10 € á dag, kemur fram í verðtilboðinu. Önnur gjöld eiga aðeins við ef eitthvað gerist — til dæmis 150 € fyrir sérstök þrif eða 10 € fyrir hverja sekt eða tilkynningu um veggjald sem berst okkur. Ekkert kortaálag. (gr. 40, 6)
Tjónaferli
Við skoðum bílinn með þér við afhendingu og sendum þér myndirnar okkar og 360° myndskeið. Nýtt tjón er gjaldfært á raunverulegum viðgerðarkostnaði, að hámarki samkvæmt verðskrá fyrir hluti sem þar eru taldir og, þegar vernd á við, að hámarki sjálfsáhættan, auk 150 € umsýslugjalds vegna tjóns. Þú færð myndir og kostnaðaráætlun eða reikning innan 10 daga frá skilum, ekkert er gjaldfært fyrr en 20 dögum síðar nema þú samþykkir það, og óháð mat sem þú biður um innan þeirra 20 daga er bindandi fyrir okkur. (gr. 10, 13, 14)
Vegaaðstoð
Hringdu fyrst í okkur í síma +354 779 9499, allan sólarhringinn. Bilun sem þú ollir ekki er löguð þér að kostnaðarlausu, þ.m.t. dráttur og annar bíll. Valfrjáls vegaaðstoðarvernd (RAP, 10 € á hvern byrjaðan dag) fellir niður gjöld fyrir útkall, vinnu og björgun þegar rafgeymir er tómur, dekk springur eða þú læsist úti í neyðartilviki; án hennar kostar slíkt útkall 4,50 € á km frá skrifstofu okkar að bílnum og til baka, að lágmarki 200 €. (gr. 50, 51, 52, 53)
Kílómetragjald
10,50 € á hvern byrjaðan leigudag: opinbera daggjaldið fyrir bílaleigubíla (1.390 ISK árið 2026), án álagningar og virðisaukaskatts, auk umsýslugjalds okkar með virðisaukaskatti. Það er sérstök lína í verðtilboðinu. (gr. 41)

Gildir frá 1. ágúst 2026

Leiguskilmálar þessir („skilmálar þessir“) og verðskrá (gr. 5) eru hluti af leigusamningi milli Ring Road Cars ehf. („leigusali“) og þess sem tekur ökutækið á leigu („leigutaki“), sem samþykkir þá með bókun, undirritun eða með því að taka við ökutækinu. Enska útgáfan er lagalega bindandi og gengur framar þeirri íslensku.

Ring Road Cars ehf. · Kennitala 620914-0100 · VSK-nr. 141747
Bogatröð 1, 262 Reykjanesbær, Iceland · info@ringroadcars.is · +354 779 9499

Orðskýringar

HugtakMerking
SjálfsáhættaHámark sem leigutaki greiðir vegna hvers tjónsatviks fyrir tjón sem vernd nær til (verðskrá), auk umsýslugjalds vegna tjóns
TjónsatvikEinn atburður eða samfelld, orsakatengd röð atburða
Umsaminn skilatímiSkilatími samkvæmt leigusamningi, eins og hann er framlengdur með staðfestingu leigusala
Opnunartími04:00–20:00 alla daga, að undanskildum 25. desember, 1. janúar og eftir kl. 12:00 á 24. og 31. desember, nema annað komi fram í leigusamningi

Bílaflokkar

1. Tegund ökutækis. Sé bókuð tegund ökutækis ekki tiltæk má leigusali láta í té sambærilegt ökutæki í sama eða hærri ACRISS-flokki á sama verði; tiltekinn framleiðandi eða gerð er einungis ábyrgst sé um það samið skriflega. Sé aðeins lægri flokkur tiltækur getur leigutaki tekið við honum gegn endurgreiðslu mismunarins eða afbókað gegn fullri endurgreiðslu. Staðgönguökutæki er leyft á F-vegum hafi bókaða ökutækið verið það (ella getur leigutaki afbókað gegn fullri endurgreiðslu) og á það leggst aldrei gjald sem ekki hefði lagst á bókaða ökutækið. Öll ökutæki eru á vetrarhjólbörðum frá 1. nóvember til 14. apríl.

Aldur og ökuréttindi

2. Lágmarksaldur. Leigutaki og allir ökumenn skulu hafa náð a.m.k. 20 ára aldri. Lágmarksaldur vegna sportjeppa (SUV), fjórhjóladrifinna ökutækja (4x4), lúxusbíla og sendibíla er 25 ár, en leigusala er heimilt, að eigin mati, að leyfa ökumönnum á aldrinum 20 til 24 ára að leigja slík ökutæki gegn greiðslu gjalds fyrir unga ökumenn (gr. 40(d)).

3. Ökuskírteini. Allir ökumenn skulu við afhendingu framvísa áþreifanlegu ökuskírteini fyrir viðkomandi flokk ökutækja, með ljósmynd, sem gildir allan leigutímann og handhafi hefur haft í a.m.k. eitt ár, án alvarlegra brota eða refsipunkta. Stafræn ökuskírteini, skjáskot og skönnuð afrit eru ekki tekin gild, nema íslenskt stafrænt ökuskírteini sem sannreynt er í rauntíma í gegnum Ísland.is. Sé ökuskírteini ekki á latnesku letri þarf, auk frumritsins, alþjóðlegt ökuskírteini eða, gefi útgáfulandið ekkert slíkt út (t.d. meginland Kína), staðfesta þýðingu, eða TIDL, löggilta eða opinberlega viðurkennda þýðingu ásamt vegabréfi.

4. Auðkenning og höfnun. Leigutaki og allir ökumenn skulu framvísa gildu vegabréfi eða nafnskírteini, og getur leigusali krafist þess að það samrýmist bókun og korti. Séu gr. 2–4 ekki uppfylltar má leigusali hafna leigunni, sem telst þá sem leigutaki hafi ekki mætt, eða ökumanninum.

Bókun, greiðsla og afbókun

5. Verðskrá. Gjöld eru tilgreind í gr. 40. Sjálfsáhætta og önnur verð eru í verðskrá („Sjálfsáhætta og verð fyrir vernd, gjöld, eldsneyti sem vantar, aukahluti sem vantar og hjólbarða“), sem er dagsett, birt á vefsvæði leigusala samhliða skilmálum þessum og liggur frammi í afgreiðslu. Sú útgáfa sem í gildi er við bókun gildir (gr. 47); fyrri útgáfur fást sé þess óskað. Sjá verðskrána.

6. Greiðsla og gjaldmiðill. Fyrirframgreiddar bókanir eru gjaldfærðar við bókun, bókanir sem greiðast síðar við áætlaða afhendingu eða síðar. Leigusali tekur við kortum frá Visa, Mastercard, American Express, China UnionPay, Discover og Diners Club, Apple Pay og Google Pay, og kann að taka við reiðufé í EUR, ISK, USD eða GBP við komu. Verð eru í EUR, með 24% virðisaukaskatti nema annað sé tekið fram, og má gjaldfæra í EUR eða ISK; gjaldfærslur í ISK og reiðufé í öðrum gjaldmiðlum eru umreiknuð á miðgengi Seðlabanka Íslands þann dag. Gjöld sem banki eða kortaútgefandi leigutaka innheimtir, svo sem vegna gjaldmiðlaskipta, greiðast af leigutaka; leigusali leggur ekkert álag á kortagreiðslur.

7. Kort, heimild og tryggingarfé. Leigutaki skal framvísa áþreifanlegu kredit- eða debetkorti á eigin nafni, einnig þótt greitt hafi verið með Apple Pay eða Google Pay, sem sýnir númer og gildistíma og gildir í 90 daga eftir lok leigu (eða öðru korti sé þess óskað); fyrirframgreidd kort, innkaupakort, nafnlaus kort og sýndarkort eru ekki tekin gild. Við afhendingu tekur leigusali heimild á kortið fyrir sjálfsáhættu verndarpakka leigutaka: EUR 3.000 með BASIC eða án CDW; EUR 1.000 með BASIC og SCDW (bókanir á vefsvæði leigusala) eða með PLUS; með MAX er engin heimild tekin (verðskrá). Heimildin er frátekt, hvorki gjaldfærsla né tryggingarfé, og er felld niður eftir skil, háð afgreiðslutíma útgefanda kortsins. Leigusala er heimilt að neita að afhenda ökutækið án fullgilds korts, eins og leigutaki hafi ekki mætt. Gjaldfæra má á kortið allar fjárhæðir sem greiða ber skv. skilmálum þessum, meðan á leigu stendur og í hæfilegan tíma eftir hana; eftir lok leigu þó aðeins eftir að leigusali hefur sent sundurliðað yfirlit með fylgigögnum í tölvupósti. Ekkert tryggingarfé er tekið við afhendingu. Finnist við skoðun við skil tjón sem engin vernd nær til (tjón á undirvagni eða vatnstjón, þ.m.t. vegna aksturs yfir ár, eða sand- og öskutjón án SAP eða MAX) er fullur kostnaður vegna þess gjaldfærður skv. gr. 13 og má leigusali taka heimild á kortið fyrir allt að EUR 10.000 vegna þess kostnaðar; sá hluti heimildarinnar sem ekki þarf er felldur niður og það sem á vantar er gjaldkræft.

8. Afbókun og breytingar. Afbókun a.m.k. 48 klukkustundum fyrir áætlaða afhendingu er endurgreidd að fullu. Sé afbókað síðar eða mæti leigutaki ekki (gr. 10), þ.m.t. ef hann framvísar ekki því sem gr. 3, 4 og 7 krefjast, fæst engin endurgreiðsla og bókun sem greiðist síðar má gjaldfæra jafnt. Óendurgreiðanleg verð eru aldrei endurgreidd og leigu fyrir tiltekið tímabil fylgir ekki 14 daga réttur til að falla frá samningi (l-liður 18. gr. laga nr. 16/2016). Afbóka skal með tölvupósti á info@ringroadcars.is, eða í gegnum endursöluaðila ef bókað var hjá honum. Kílómetragjald er endurgreitt vegna afbókaðrar eða ósóttrar bókunar. Breytingar eru háðar framboði og, innan 48 klukkustunda fyrir afhendingu, samþykki leigusala; hverri breytingu fylgir breytingagjald, bókunin er endurverðlögð á gildandi verði (lægra verð er ekki endurgreitt) og afbókunarfrestur hefst aldrei að nýju.

Skyldur leigutaka

9. Leigutaki samþykkir leigusamninginn og staðfestir að hafa fengið afrit af honum.

10. Afhending og skoðun við afhendingu. Leigutaki skal sækja ökutækið innan tveggja klukkustunda frá áætluðum tíma, ella má fara með bókunina eins og leigutaki hafi ekki mætt; leigusali reynir að halda ökutækinu ef seinkun er tilkynnt fyrir fram. Áður en ökutækið fer skoða leigusali og leigutaki það saman og skrá allar fyrirliggjandi skemmdir í ástandsskýrslu ökutækis, sem leigutaki undirritar og fær afrit af. Leigusali tekur ljósmyndir og 360° myndskeið af ökutækinu og sendir leigutaka, sem má einnig taka eigin ljósmyndir. Skemmdir sem ekki eru skráðar þá teljast hafa orðið á leigutímanum nema leigutaki sýni fram á annað.

11. Skil. Leigutaki skal skila ökutækinu og öllum fylgihlutum (þ.m.t. hjólbörðum og verkfærum) í sama ástandi og við móttöku, að undanskildu eðlilegu sliti vegna notkunar: (a) eigi síðar en á umsömdum skilatíma; (b) á starfsstöð leigusala eða öðrum fyrir fram umsömdum stað (gjald fyrir leigu aðra leið); (c) með fullan eldsneytisgeymi, fylltan innan 5 km frá skilastað (ekki þarf að hlaða tengiltvinnbíl); og (d) hreinu að innan og nægilega hreinu að utan til skoðunar.

12. Leigudagar og síðbúin skil. Leiga er gjaldfærð í 24 klukkustunda leigudögum frá áætluðum afhendingartíma til umsamins skilatíma eða síðari skila. Leigutíma lýkur þegar ökutækið og allir lyklar hafa verið afhent starfsfólki á umsömdum stað. Fyrri skil eða notkunarleysi fást ekki endurgreidd, nema bilun sem leigutaki olli ekki og ekki hefur verið bætt úr hindri notkun (gr. 29). Sé ökutækinu skilað meira en klukkustund eftir lok leigudags má gjaldfæra aukadag, og fyrir hverjar byrjaðar 24 klukkustundir þar á eftir annan á gildandi daggjaldi, auk skjalfests kostnaðar við endurheimt. Framlenging er háð samþykki leigusala; að öðrum kosti má leigusali, eftir að hafa reynt að ná í leigutaka, taka ökutækið á kostnað leigutaka, tilkynna það lögreglu og staðsetja það með staðsetningarbúnaði. Notkun meira en klukkustund eftir umsaminn skilatíma án samþykkis er óheimil notkun án verndar, nema leigutaki hafi tilkynnt leigusala að lokun vegar, veðurviðvörun eða önnur atvik sem hann ræður ekki við hindri skil; tíminn er þó gjaldfærður. Hámarksleigutími er 30 dagar; vilji leigutaki halda leigu áfram skal hann skila ökutækinu á skrifstofu leigusala.

13. Skoðun við skil og tjón. Leigusali skoðar ökutækið á skrifstofu sinni í Keflavík á opnunartíma (ökutæki sem skilað er utan opnunartíma þegar hann hefst næst; ökutæki sem skilað er annars staðar þegar það kemur á skrifstofuna, og ber leigusali flutningstjón) og afhendir leigutaka kvittun. Áhætta flyst þegar ökutækið og lyklarnir eru afhent starfsfólki; ökutæki sem skilið er eftir án eftirlits eða með lyklana í eða á því er áfram á áhættu leigutaka. Nýtt tjón er skráð í tjónaskýrslu sem sýnd er leigutaka; undirritun staðfestir einungis að hún hafi verið sýnd og synjun um undirritun fellir ekki niður ábyrgð. Tjón er gjaldfært á raunverulegum viðgerðarkostnaði samkvæmt reikningi eða sundurliðaðri kostnaðaráætlun verkstæðis, aldrei umfram verðskrá fyrir hluti sem þar eru tilgreindir og, þar sem vernd á við, allt að sjálfsáhættu, auk umsýslugjalds vegna tjóns. Leigusali sendir tilkynningu í tölvupósti ásamt ljósmyndum og kostnaðaráætlun eða reikningi innan 10 daga frá skilum og gjaldfærir ekkert, fyrir utan heimild skv. gr. 7, fyrr en 20 dögum síðar nema leigutaki samþykki það skriflega. Sé endanlegur reikningur lægri en gjaldfærð kostnaðaráætlun er mismunurinn endurgreiddur.

14. Óháð mat. Innan 20 daga frá tilkynningu um tjónið getur leigutaki óskað skriflega eftir mati óháðs bifreiðaverkstæðis sem notar Cabas-tjónamatskerfið; ekkert er gjaldfært fyrr en matinu er lokið. Niðurstaðan er bindandi fyrir leigusala; sé hún lægri greiðir leigusali fyrir matið og endurgreiðir mismuninn. Umsýslugjald vegna tjóns á við í öllum tilvikum. Leigutaki getur einnig skotið málinu til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa (gr. 44) eða til dómstóla.

15. Gætileg notkun og ábyrgð. Ökutækinu skal ekið gætilega og það læst þegar það er skilið eftir án eftirlits, og aldrei má skilja lyklana eftir í eða á því. Einungis ökumenn sem tilgreindir eru í leigusamningi mega aka því; leigutaki ber ábyrgð á hverjum þeim sem fær ökutækið eða lykil, og leigutaki og hver ökumaður bera óskipta ábyrgð. Leigutaki ber ábyrgð á tjóni á ökutækinu og líkamstjóni farþega sem engin vernd eða trygging bætir og rekja má til brots á gr. 16 eða 17, ásetnings, stórkostlegs gáleysis, vímu eða notkunar sem brýtur gegn lögum eða leigusamningi.

16. Vegir og utanvegaakstur. Einungis fjórhjóladrifnu ökutæki (4x4, 4WD eða AWD) sem staðfest er í bókun að sé leyfður á F-vegum má aka á F-vegum, Kili (vegi 35 frá vegi 37 að vegi 732), Kaldadal (550), Öxi (939) eða vegum 586 og 864, einungis þegar þeir eru opinberlega opnir, og aldrei á F26, F66, F88, F206, F207, F208 (nema frá vegi 26 að F224), F210, F223, F225, F228, F229, F232, F233, F235, F249, F261, F333, F337, F338, F578, F734, F752, F756, F821, F839, F881, F899, F902, F903, F905, F909, F910, F946 eða F980. Óheimilt er að aka nokkru ökutæki utan vega (sem er ólöglegt), á óskráðum vegum eða slóðum eða á vegum sem eru lokaðir eða merktir ófærir (umferdin.is); það er ekki brot að fara út af vegi af nauðsyn, t.d. vegna vegaframkvæmda eða lögreglu. Broti fylgir gjald vegna utanvegaaksturs eða aksturs á bönnuðum vegi og engin vernd nær til tjóns sem af því hlýst. Lögboðin vátrygging gildir áfram, með lögbundnum endurkröfurétti vátryggingafélagsins á hendur leigutaka.

17. Ár og vatnsföll. Akstur út í eða yfir hvers kyns á, læk, vað eða annað vatnsfall, jafnvel á F-vegi sem heimilt er að aka á, er alfarið á eigin áhættu leigutaka. Engin vernd nær til þess (gr. 36); leigutaki greiðir fullan viðgerðarkostnað eða verðmæti ökutækisins, auk kostnaðar við drátt.

18. Færð og veður. Leigutaki skal kynna sér flokkun vega, lokanir, færð og viðvaranir (Vegagerðin á umferdin.is, vedur.is, safetravel.is), haga akstri eftir snjó, hálku og möl og í hvassviðri leggja ökutækinu upp í vindinn og halda þétt um hurðir.

19. Óhöpp. Verði óhapp skal leigutaki tafarlaust tilkynna það lögreglu (112 í neyðartilvikum) og leigusala og vera á vettvangi þar til lögregla kemur eða tilkynnir að hún komi ekki, eða leigusali heimilar honum að fara. Eigi annað ökutæki hlut að máli undirrita báðir ökumenn tjónstilkynningu, sem send er leigusala þegar í stað. Þjófnað, skemmdarverk og tjón þar sem dýr koma við sögu skal tilkynna lögreglu og leigusala án tafar. Vanræksla fellir vernd niður aðeins að því marki sem hún torveldaði verulega mat á tjóninu eða endurheimt þess.

20. Viðgerðir og breytingar. Leigutaka er óheimilt, án skriflegs samþykkis leigusala fyrir fram (tölvupóstur eða skilaboð nægja), að láta gera við ökutækið, breyta því eða setja það að veði; heimilt er að skipta um hjól eða framkvæma neyðarviðgerð sem nauðsynleg er af öryggisástæðum.

21. Eldsneyti, dýr og farmur. Leigutaki skal nota þá eldsneytistegund sem tilgreind er á ökutækinu. Sé röngu eldsneyti dælt á ökutækið má ekki ræsa það og skal hringja í leigusala; engin vernd nær til tjónsins og tæming og viðgerð eru gjaldfærð á skjalfestum kostnaði, auk gjalds fyrir drátt og flutning sé ökutækið flutt. Dýr eru háð skriflegu samþykki leigusala fyrir fram og þrif af þeirra völdum eru gjaldfærð. Farmur á þaki krefst toppgrindar sem leigusali hefur samþykkt.

22. Sektir, veggjöld og bílastæði. Leigutaki greiðir öll bílastæðagjöld, aðgangseyri, veggjöld og sektir fyrir umferðarlagabrot sem til falla á leigutímanum, auk umsýslugjalds. Gjöld vegna jarðganga (nú Vaðlaheiðargöng), bílastæða og ferðamannastaða sem skráð eru með myndavélum skal ökumaður greiða á netinu innan tilgreinds frests. Leigusala er heimilt að afhenda lögreglu, þeim aðila sem leggur á gjaldið eða innheimtuaðila hans upplýsingar um leigutaka svo að gjaldið verði lagt beint á leigutaka.

23. Heimil notkun. Án samþykkis leigusala fyrir fram er óheimilt að nota ökutækið til farþegaflutninga gegn gjaldi, lána það eða framleigja. Aldrei má nota það til kappaksturs, hraðaprófana eða ökukennslu, til að draga eða ýta ökutæki eða draga eftirvagn, eða til að flytja hættulegan varning umfram magn til eigin nota. Reykingar og notkun rafrettna eru óheimilar og varða þrifagjaldi. Börn skulu nota viðeigandi öryggisbúnað fyrir börn, sem leigutaki skal festa rétt, einnig þótt hann sé leigður, og aldrei bakvísandi fyrir framan virkan loftpúða.

24. Kílómetrafjöldi og kílómetramælir. Akstur er ótakmarkaður nema takmörkun sé tilgreind í bókun og leigusamningi, og ávallt við bókun á vefsvæði leigusala. Takmörkuð bókun felur í sér 100 km á leigudag nema annað sé tilgreint; aukakílómetrar eru gjaldfærðir nema leigutaki hafi keypt ótakmarkaðan akstur. Kílómetramælir ræður; tilkynna skal bilun í honum án tafar. Að eiga við kílómetramælinn eða nokkurn staðsetningar-, öryggis- eða greiningarbúnað er veruleg vanefnd á kostnað leigutaka.

25. Ferðir út fyrir Ísland. Ekki má fara með ökutækið frá Íslandi án skriflegs samþykkis leigusala fyrir fram. Innanlandsferjur eru á eigin áhættu leigutaka og engin vernd nær til tjóns við óheimilar ferðir erlendis eða flutning sjóleiðis.

26. Persónulegir munir. Leigusali ber ekki ábyrgð á munum í eða á ökutækinu nema hann hafi valdið tjóninu af ásetningi eða gáleysi. Kostnaður við að senda áfram muni sem finnast greiðist af leigutaka.

27. Leiga í atvinnuskyni. Leigutaka sem leigir í atvinnuskyni er óheimilt að skuldajafna kröfu á móti gjöldum leigusala nema leigusali hafi viðurkennt hana skriflega eða hún hafi verið staðfest með endanlegum dómi.

Skyldur leigusala

28. Leigusali skal afhenda ökutækið á umsömdum tíma, í ökuhæfu ástandi, skráð og vátryggt, og skal það hafa staðist aðalskoðun. Geti leigusali ekki afhent ökutæki í bókuðum flokki eða hærri flokki er leigutaka heimilt að afbóka og fá fulla endurgreiðslu.

29. Leigusali skal bæta úr bilun sem leigutaki olli ekki, leigutaka að kostnaðarlausu, eins og kveðið er á um í gr. 51; minniháttar bilun má gera við á staðnum með samþykki leigutaka.

30. Leigusali skal kynna leigutaka efni leigusamnings og upplýsa erlendan leigutaka um íslenskar umferðarreglur og umferðarmerki, bann við utanvegaakstri, akstur yfir ár og dýr á vegum. Allar takmarkanir á notkun ökutækisins skulu tilgreindar skriflega við undirritun eða tilkynntar með tölvupósti á leigutímanum og gilda frá því að leigutaki móttekur þær.

31. Leigusali hefur í gildi ábyrgðartryggingu vegna starfsemi sinnar og ökutækja sinna.

32. Takmörkun ábyrgðar. Leigusali ber ekki ábyrgð á tjóni vegna atvika utan sanngjarnrar stjórnar hans, svo sem eldgosa, óveðurs eða lokunar vega, né á óbeinu tjóni, svo sem vegna flugs sem missist af, gistingar eða hagnaðarmissis. Ábyrgð hans á beinu tjóni takmarkast við fjárhæðir sem greiddar hafa verið fyrir leiguna. Engin þessara takmarkana á við um dauða, líkamstjón, ásetning eða stórkostlegt gáleysi, eða þegar lög heimila ekki takmörkun.

Tryggingar og vernd

33. Innifalið í hverri leigu. Í leiguverði eru innifaldar þær ökutækjatryggingar sem lögboðnar eru samkvæmt íslenskum lögum: ábyrgðartrygging ökutækis, að þeirri fjárhæð sem lög kveða á um, og slysatrygging ökumanns og eiganda; upplýsingar um heiti vátryggingafélagsins og skilmála þess eru veittar sé þess óskað. Einnig er innifalin þjófnaðarvernd og, nema bókun hafi verið gerð án hennar eða leigutaki afþakki hana, kaskóvernd (CDW). Að öðru leyti ber leigutaki ábyrgð á tjóni á ökutækinu og missi þess, að undanskildu eðlilegu sliti og bilunum sem leigutaki olli ekki.

34. Verndarpakkar. Hverri leigu með CDW fylgir einn af þremur verndarpökkum, sem tilgreindur er í leigusamningi:

VerndarpakkiHvað er innifalið
BASICLögboðin ábyrgðartrygging ökutækis, slysatrygging, þjófnaðarvernd og CDW
PLUSBASIC ásamt aukinni kaskóvernd (SCDW) og dekkja- og framrúðuvernd (TWP)
MAXBASIC ásamt kaskóvernd án sjálfsáhættu (ZCDW), TWP og sand- og öskuvernd (SAP)

TWP og SAP eru einnig seldar sem viðbótarvernd; vegaaðstoðarvernd (RAP, gr. 52) er einungis seld sem viðbótarvernd. CDW er ekki seld sérstaklega: við bókun án hennar, eins og sumar bókanir hjá þriðja aðila, þarf að bæta henni við til að kaupa PLUS eða MAX. Við bókanir á vefnum, sem fela í sér SCDW, má bæta TWP til að fá vernd PLUS.

35. Kaskóvernd (CDW). CDW takmarkar ábyrgð leigutaka á árekstrartjóni við sjálfsáhættu verndarpakkans BASIC fyrir hvert tjónsatvik; tjón sem gögn sýna að sé ótengt, svo sem ákeyrslur á mismunandi hliðum, telst til aðskilinna tjónsatvika. Leigutaki getur afþakkað CDW við bókun eða í afgreiðslu leigusala eftir að honum hefur verið sýnd tilkynning leigusala um afþökkun, og ber hann þá fullan kostnað vegna tjóns á ökutækinu og aukahlutum þess, eða missis þeirra, allt að verðmæti þeirra; afþökkun CDW lækkar ekki leiguverðið. Einungis er ráðlegt að afþakka CDW ef eigin kortatrygging eða ferðatrygging leigutaka nær til bílaleigubíla á Íslandi. Þjófnaðarvernd gildir áfram.

36. Undanþágur. Engin vernd, í neinum verndarpakka, nær til tjóns:

  • a. af völdum ásetnings, skemmdarverka eða stórkostlegs gáleysis;
  • b. meðan ökumaður er undir áhrifum áfengis eða vímuefna eða að öðru leyti óhæfur til aksturs;
  • c. vegna kappaksturs, hraðaprófana, ökukennslu, stríðs eða borgaralegra óeirða;
  • d. sem dýr valda eða eiga hlut að;
  • e. á innanrými ökutækisins, þ.m.t. brunaskemmda;
  • f. eingöngu á hjólum, hjólbörðum, fjöðrun, rafgeymum, framrúðu, þaki eða útvarpstækjum, að undanskildu hjólbarða- og framrúðutjóni sem TWP nær til, eða þjófnaðar á hlutum og tjóns sem af honum hlýst;
  • g. á undirvagni, eða á drifbúnaði, vél eða grindarhlutum af völdum ósléttra vega, hryggja eftir veghefla eða grjóts;
  • h. af völdum aksturs þar sem hann er óheimill, svo sem á stígum, jöklum, frosnum vötnum, í snjó utan viðhaldinna vega, á fjörum og sjávarfallasvæðum, eða af vatnsföllum eða vatni sem kemst inn í ökutækið, nema ökumaður hafi neyðst út af vegi;
  • i. af völdum fjúkandi sands, malar, ösku, vikurs eða jarðvegs, að undanskildu sand- og öskutjóni sem SAP eða MAX nær til;
  • j. við flutning með ferju eða sjóleiðis, þ.m.t. af sjávarseltu;
  • k. við akstur óheimils eða réttindalauss ökumanns;
  • l. á kúplingu eða gírkassa, eða af völdum rangs eldsneytis; eða
  • m. sem er í verulegu ósamræmi við tilkynnt tjónsatvik, sem leigusali skal sýna fram á.

37. Þjófnaðarvernd. Þjófnaðarvernd gildir í öllum verndarpökkum ef ökutækið var læst og gluggar lokaðir, lyklum er skilað og þjófnaðurinn var tilkynntur án tafar (gr. 19). Hún nær ekki til þjófnaðar á hlutum ökutækisins eða persónulegum munum, né til þjófnaðar sem var mögulegur vegna þess að lyklar voru skildir eftir í ökutækinu eða vegna stórkostlegs gáleysis.

38. SCDW, ZCDW, TWP og SAP. SCDW (PLUS og bókanir á vefnum) krefst CDW og takmarkar ábyrgð á árekstrartjóni við sjálfsáhættu PLUS fyrir hvert tjónsatvik. ZCDW (MAX) lækkar hana í núll, þ.m.t. vegna tjóns sem TWP og SAP ná til; með MAX gildir undanþága (f) ekki um hjól og hjólbarða, en aðrar undanþágur í gr. 36 gilda, þ.m.t. um tjón eingöngu á fjöðrun, rafgeymum, þaki eða útvarpstækjum, og umsýslugjald vegna tjóns á við. TWP nær án sjálfsáhættu eingöngu til hlutarins sjálfs: hjólbarða þegar eingöngu hjólbarðinn er skemmdur og framrúðu sem skemmist af möl frá öðru ökutæki. Hún nær ekki til felgna, ásetningar eða annarrar vinnu, flutnings á hjólbarðaverkstæði, vegaaðstoðar eða neyðargjalda (sjá RAP, gr. 52). SAP nær án sjálfsáhættu til tjóns af völdum sandstorma, veðrunar og ösku, nema á svæði þar sem appelsínugul eða rauð viðvörun vegna vinds frá Veðurstofu Íslands er í gildi.

39. Hvenær vernd gildir. Vernd gildir einungis þar til ökutækinu er skilað, einungis fyrir tilgreinda ökumenn, einungis eftir greiðslu (við bókun sem greiðist síðar, frá afhendingu) og aldrei við óheimila notkun (gr. 12). Leigutaki getur hvenær sem er bætt við vernd; hún nær aldrei til eldra tjóns, hvort sem vitað er um það eða ekki.

Gjöld

40. Gjöld. Eftirfarandi gjöld eru innheimt þegar þau eiga við (gjald sem á við um allar leigur er innifalið í bókunarverði):

  • a. Staðsetningargjald: EUR 62, einungis þar sem þriðji aðili sem bókað var í gegnum tilgreinir það í bókuninni. Það á ekki við um bókanir á vefsvæði leigusala, er aldrei lagt á í afgreiðslu og er ekki gjald fyrir akstur: akstur til og frá Keflavíkurflugvelli er innifalinn í allri leigu á opnunartíma og í þjónustu utan opnunartíma skv. b-lið;
  • b. Þjónusta utan opnunartíma: EUR 75 fyrir hverja afhendingu eða skil á Keflavíkurflugvelli utan opnunartíma, samkvæmt fyrir fram umsaminni beiðni, akstur innifalinn; EUR 150 eftir kl. 12:00 á 24. og 31. desember; engin afhending eða skil 25. desember og 1. janúar;
  • c. Aukaökumaður: EUR 10 á dag fyrir hvern tilgreindan ökumann auk leigutaka;
  • d. Gjald fyrir unga ökumenn: EUR 15 á dag á hvern ökumann 20–24 ára sem leigir sportjeppa, fjórhjóladrifið ökutæki, lúxusbíl eða sendibíl (gr. 2);
  • e. Breytingagjald: EUR 10 fyrir hverja breytingu á bókun (gr. 8);
  • f. Gjald vegna utanvegaaksturs: EUR 1.000 vegna aksturs utan vega (gr. 16);
  • g. Gjald vegna aksturs á bönnuðum vegi: EUR 1.000 fyrir akstur á bönnuðum vegi (gr. 16);
  • h. Gjald vegna óheimils ökumanns: EUR 1.000 þegar aðili sem ekki er tilgreindur í leigusamningi ekur ökutækinu með leyfi leigutaka eða skráðs ökumanns;
  • i. Umsýslugjald: EUR 10 fyrir hverja sekt, hvert veggjald eða hverja tilkynningu vegna leigunnar sem berst leigusala (gr. 22);
  • j. Áfyllingargjald: EUR 30 vegna ökutækis sem ekki er skilað með fullan tank, auk eldsneytis sem vantar í áttundu hlutum tanks (byrjaður áttundi hluti telst heill) á því lítraverði sem N1 birtir fyrir stöð sína að Flugvöllum 27, 230 Reykjanesbæ (n1.is/is/eldsneytisverd), þann dag sem leigusali fyllir á ökutækið, án álagningar (dæmi eru í verðskrá);
  • k. Þrifagjald: EUR 150 vegna innanrýmis sem þarfnast blautryksugunar eða sérstakrar meðhöndlunar umfram venjulegt vegryk, eða ummerkja um reykingar eða notkun rafrettna, svo sem stubba, ösku eða lyktar;
  • l. Dráttur og flutningur: EUR 4,50 á hvern km, fram og til baka, að lágmarki EUR 200, þegar leigutaki ber ábyrgð á flutningi ökutækisins og vegna útkalls án RAP (gr. 53);
  • m. Umsýslugjald vegna tjóns: EUR 150 í hvert sinn sem tjón er gjaldfært (gr. 13), í öllum verndarpökkum, þ.m.t. MAX;
  • n. Lyklar, skjöl, hjólbarðar og aukahlutir: hlutir sem glatast eða skemmast, á verði verðskrár eða skjalfestum kostnaði (gr. 13); glatað skráningarmerki, EUR 100, fellur aldrei undir vernd;
  • o. Leiga aðra leið: EUR 50 milli Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkur; fyrir aðra umsamda staði er það staðfest skriflega þegar samið er;
  • p. Aukakílómetrar: EUR 0,35 á hvern km umfram takmarkaðan kílómetrafjölda (gr. 24).

41. Kílómetragjald. Leigusali skuldar ríkinu kílómetragjald (lög nr. 100/2025) og greiðir það, vegna leigu í allt að 30 daga, sem opinbert daggjald bílaleigubíla (4. mgr. 6. gr. og 12. gr.). Kílómetragjald, EUR 10,50 fyrir hvern hafinn leigudag, er (a) það daggjald, án álagningar og virðisaukaskatts (26. gr.), auk (b) umsýslugjalds leigusala, með virðisaukaskatti. Fari leiga engu að síður yfir 30 daga (gr. 12) er opinbera gjaldið fyrir allan leigutímann innheimt á hvern ekinn kílómetra (6. gr.), auk (b) fyrir hvern dag.

Almenn ákvæði

42. Leigusamningur skal ávallt vera í ökutækinu og allar breytingar á honum skulu vera skriflegar.

43. Lög og ágreiningsmál. Um samninginn gilda íslensk lög, þ.m.t. um kröfur utan samninga. Ágreiningsmál fara fyrir dómstól á varnarþingi leigusala, án þess að neytandi sé sviptur ófrávíkjanlegum rétti, þ.m.t. samkvæmt Lúganósamningnum, til að höfða mál og sæta málsókn í heimalandi sínu; neytanda með lögheimili á Íslandi verður aðeins stefnt í heimaumdæmi hans.

44. Kvartanir. Kvartanir skal fyrst senda á info@ringroadcars.is. Neytandi getur síðan skotið ágreiningi til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa, og neytendur í öðrum EES-ríkjum geta leitað til ECC Iceland.

45. Greiðsludráttur. Af gjaldföllnum fjárhæðum reiknast dráttarvextir (lög nr. 38/2001) frá gjalddaga eða, sé hann enginn, mánuði eftir að greiðslu var krafist (5. gr.), og, að lokinni tilskilinni viðvörun, innheimtukostnaður (lög nr. 95/2008). Bakfærsla kortagreiðslu fellir ekki niður gilda skuld.

46. Leigusala er heimilt að framselja leigusamninginn til tengds félags eða arftaka í rekstri sem yfirtekur skuldbindingar hans. Reynist ákvæði ógilt eða óframfylgjanlegt halda önnur ákvæði gildi sínu; ákvæði sem er ósanngjarnt gagnvart neytanda bindur hann ekki.

47. Breytingar. Um bókun gilda þeir skilmálar og sú verðskrá sem í gildi eru þegar bókunin er gerð, nema að því leyti sem gr. 8 og 12 kveða á um og að undanskildum skatta- eða lagabreytingum, sem gilda frá þeim degi sem þær taka gildi. Tiltekið skilyrði í bókunarstaðfestingu eða leigusamningi, svo sem verndarpakki eða skilastaður, gengur framar skilmálum þessum og verðskrá; skilyrði í leigusamningi sem víkur frá bókuninni gildir aðeins ef leigutaki hefur samþykkt það.

48. Upplýsingar á vefsvæði. Sé augljós villa í verði eða lýsingu á vefsvæðinu getur leigutaki afbókað og fengið fulla endurgreiðslu þegar honum er tilkynnt um hana. Að því marki sem lög leyfa ber leigusali ekki ábyrgð á villum á vefsvæðinu eða truflunum á því.

Staðsetningarbúnaður (GPS) og persónuupplýsingar

49. Ökutæki kunna að vera búin staðsetningarbúnaði, sem gefið er til kynna með límmiða. Ring Road Cars ehf., sem ábyrgðaraðili, safnar í gegnum þjónustuveitanda fjarmælingagagna upplýsingum um staðsetningu, hraða, hröðun, árekstra og ökutækið ásamt auðkenni búnaðarins, til að hindra þjófnað, finna ökutæki sem ekki hefur verið skilað á tíma, greina óheimila notkun, staðreyna hvenær og hvernig tjón varð, sanna gjöld, annast tjónamál, veita aðstoð og stýra ökutækjaflotanum. Gögnunum er eytt innan 90 daga nema þeirra sé þörf vegna kröfu, ágreinings eða lagaskyldu. Lagagrundvöllur, aðrar persónuupplýsingar sem unnið er með og réttindi leigutaka koma fram í persónuverndarstefnunni á ringroadcars.is/en/privacy.

Vegaaðstoð

50. Öllum leigum fylgir aðstoð 24/7 vegna bilana og neyðartilvika í síma +354 779 9499. Leigutaki skal hringja áður en hann útvegar aðstoð eða viðgerð frá þriðja aðila; viðgerðir án heimildar eru ekki endurgreiddar.

51. Við vélarbilun eða bilun vegna eðlilegs slits, án sakar leigutaka, er vegaaðstoð ókeypis fyrir alla leigutaka, með eða án RAP, þ.m.t. dráttur og annað ökutæki í staðinn svo fljótt sem með sanngirni er unnt.

52. Vegaaðstoðarvernd (RAP). RAP er valkvæð viðbótarvernd sem fellir niður gjöld fyrir útkall, vinnu og björgun, þ.m.t. drátt, í neyðartilvikum og eingöngu þegar rafgeymir er tómur, dekk springur eða leigutaki læsist úti. RAP nær ekki til áfyllingar rangs eldsneytis, nýrra lykla eða hjólbarða (hlutarins sjálfs; sjá TWP), eldsneytisleysis, björgunar af lokuðum vegum eða vegum með takmörkunum, aðstoðar sem ekki er vegna neyðartilviks, eða atvika sem leigutaki veldur sjálfur, þ.e. af ásetningi, stórkostlegu gáleysi eða með broti á gr. 16 eða 17. Leigutaki verður að fara að öllum ákvæðum skilmála þessara til að njóta RAP; rétturinn fellur niður vegna atviks sem brot olli eða átti þátt í.

53. Án RAP. Án RAP greiðist gjald fyrir drátt og flutning vegna útkalls þegar rafgeymir er tómur, dekk springur eða leigutaki læsist úti, fyrir vegalengdina frá skrifstofu leigusala að ökutækinu og til baka. Án RAP, eða vegna atvika sem RAP nær ekki til, er ekkert annað útkallsgjald innheimt, en fyrir drátt vegna tjóns (nema þriðji aðili beri ábyrgð), misnotkunar, brots, skila á óumsömdum stað eða annars atviks sem leigutaki ber ábyrgð á greiðist gjald fyrir drátt og flutning, óháð aðstæðum, og lyklar, hjólbarðar, eldsneyti og varahlutir eru gjaldfærðir. Vegaaðstoð er ætluð fyrir neyðartilvik: leigutaki skal gera sanngjarnar ráðstafanir til að leysa minniháttar vandamál sjálfur, svo sem að setja varadekk undir þar sem það fylgir, og fyrir útkall sem ekki var vegna neyðartilviks, eða sem komast hefði mátt hjá með sanngjörnum hætti, má innheimta gjald fyrir drátt og flutning. Ekkert af þessu á við um bilun sem leigutaki olli ekki (gr. 51).

Síðast uppfært: 8. október 2026

Ring Road Cars — Verðskrá

Sjálfsáhætta og verð fyrir vernd, gjöld, eldsneyti sem vantar, aukahluti sem vantar og hjólbarða

Gildir frá 1. ágúst 2026 · síðast uppfærð 8. október 2026

Verðskrá þessi er hluti af leiguskilmálum Ring Road Cars (sem gilda frá 1. ágúst 2026) og vísa greinanúmer hér að neðan til þeirra. Öll verð eru í EUR og með virðisaukaskatti (24%) nema annað sé tekið fram. Þau má innheimta í EUR eða ISK; fjárhæð sem innheimt er í ISK er umreiknuð miðað við miðgengi Seðlabanka Íslands á gjaldfærsludegi (sbr. gr. 6). Um bókun gildir sú verðskrá sem í gildi er þegar bókunin er gerð (sbr. gr. 47). Dagverð eru innheimt fyrir hvern leigudag, án hámarks.

1. Vernd

VerndVerðGrein
BASIC: lögboðin ábyrgðartrygging ökutækis, slysatrygging, þjófnaðarvernd og kaskóvernd (CDW)Innifalinn í leiguverði. Í bókun sem gerð var án CDW er CDW bætt við á EUR 10 á dag, og aðeins ásamt PLUS eða MAX33, 34, 35
PLUS: BASIC ásamt aukinni kaskóvernd (SCDW) og dekkja- og framrúðuvernd (TWP)EUR 25 á dag, auk CDW ef hún er ekki innifalin í bókuninni34, 38
MAX: BASIC ásamt kaskóvernd án sjálfsáhættu (ZCDW), TWP og sand- og öskuvernd (SAP)EUR 40 á dag, auk CDW ef hún er ekki innifalin í bókuninni34, 38
Bókanir sem gerðar eru á ringroadcars.isBASIC og SCDW innifalin, með ótakmörkuðum akstri. Bæta má TWP við á EUR 20 á dag, og er verndin þá sú sama og í PLUS, eða MAX á EUR 40 á dag34, 24
TWP, viðbótarverndEUR 20 á dag38
SAP, viðbótarverndEUR 15 á dag38
Vegaaðstoðarvernd (RAP), viðbótarverndEUR 10 á hvern hafinn leigudag52

2. Sjálfsáhætta fyrir hvert tjónsatvik

VerndFjárhæðGrein
BASIC (CDW)EUR 3.000, allir flokkar ökutækja35
PLUS (SCDW)EUR 1.000, allir flokkar ökutækja38
MAX (ZCDW)EUR 038
TWP: tjón á hjólbörðum og tjón á framrúðu af völdum steinkastsEUR 038
SAP: tjón af völdum sand- og öskufoksEUR 038
Þjófnaðarvernd, innifalin í öllum leigumEUR 0, með þeim skilyrðum sem fram koma í gr. 3737
Án CDW (ekki í bókun eða afþökkuð), eða tjón sem engin vernd nær tilÓtakmörkuð: fullur kostnaður vegna tjónsins, allt að verðmæti ökutækisins35, 36
Heimild á kortið eftir skoðun við skil (ekki sjálfsáhætta) vegna tjóns sem engin vernd nær til og er gjaldfært að fullu: tjóns á undirvagni eða af völdum vatns, og tjóns af völdum sand- og öskufoks þegar hvorki SAP né MAX var keyptAllt að EUR 10.0007, 13
Heimild við afhendingu (frátekt á korti, hvorki gjaldfærsla né tryggingarfé)EUR 3.000 með BASIC eða án CDW; EUR 1.000 með BASIC og SCDW (bókanir á ringroadcars.is) eða PLUS; engin með MAX7

Umsýslugjald vegna tjóns (sbr. gr. 40(m)) er innheimt til viðbótar sjálfsáhættu í öllum verndarpökkum, þar á meðal MAX.

3. Gjöld

Gjöldin hér að neðan koma einnig fram í gr. 40 í leiguskilmálunum, að undanskildri uppfærslu í ótakmarkaðan akstur.

GjaldVerðGrein
Staðsetningargjald, einungis þar sem þriðji aðili sem bókað var í gegnum tilgreinir það í bókuninni: á ekki við um bókanir á ringroadcars.is, er aldrei lagt á í afgreiðslu og er ekki gjald fyrir akstur (akstur til og frá Keflavíkurflugvelli er innifalinn í allri leigu)EUR 6240(a)
Þjónusta utan opnunartíma á Keflavíkurflugvelli, samkvæmt beiðni sem samið hefur verið um fyrir framEUR 75 fyrir hverja þjónustu; EUR 150 fyrir hverja þjónustu eftir kl. 12:00 á 24. og 31. desember; engin þjónusta 25. desember og 1. janúar40(b)
AukaökumaðurEUR 10 á dag40(c)
Gjald fyrir unga ökumenn, fyrir leigutaka eða ökumann á aldrinum 20 til 24 ára sem leigir sportjeppa (SUV), fjórhjóladrifið ökutæki (4x4), lúxusbíl eða sendibíl, að mati leigusalaEUR 15 á dag40(d)
BreytingagjaldEUR 1040(e)
Leiga aðra leið milli Keflavíkurflugvallar og ReykjavíkurEUR 5040(o)
Uppfærsla í ótakmarkaðan akstur við bókun með takmörkuðum akstriEUR 19 á hvern leigudag24
Aukakílómetrar við bókun með takmörkuðum akstri (innifalinn kílómetrafjöldi er 100 km á hvern leigudag)EUR 0,35 á km40(p)
Kílómetragjald, leiga í allt að 30 samfellda dagaEUR 10,50 fyrir hvern hafinn leigudag. Þar af er opinbera daggjaldið sem ákveðið er í lögum (1.390 kr. fyrir hvern hafinn leigudag árið 2026) innheimt án virðisaukaskatts; afgangurinn er umsýslugjald leigusala, með virðisaukaskatti41
Kílómetragjald, fari leiga engu að síður yfir 30 samfellda daga (hámarksleigutími er 30 dagar, gr. 12)Opinbert kílómetragjald fyrir ekna kílómetra, samkvæmt gjaldi sem ákveðið er í lögum (6,95 kr. á km árið 2026 fyrir ökutæki allt að 3.500 kg), án virðisaukaskatts, auk umsýslugjalds leigusala fyrir hvern leigudag, sem nemur þeim hluta EUR 10,50 sem er umfram opinbera daggjaldið41
Umsýslugjald vegna sekta, veggjalda og bílastæðagjaldaEUR 10 fyrir hvert tilvik40(i)
Umsýslugjald vegna tjónsEUR 15040(m)
Þrifagjald, þ.m.t. vegna ummerkja um reykingar eða rafrettur, svo sem stubba, ösku eða lyktarEUR 15040(k)
Dráttur og flutningur, þ.m.t. útkall án RAP þegar rafgeymir er tómur, dekk springur eða leigutaki læsist úti (frá skrifstofu leigusala að ökutækinu og til baka)EUR 4,50 á km fyrir alla leiðina, fram og til baka; að lágmarki EUR 20040(l), 53
Gjald vegna utanvegaakstursEUR 1.00040(f)
Gjald vegna aksturs á bönnuðum vegiEUR 1.00040(g)
Gjald vegna óheimils ökumannsEUR 1.00040(h)

4. Eldsneyti sem vantar

LiðurVerðGrein
Eldsneyti sem vantar, fyrir hvern byrjaðan áttunda hluta tanksLítraverð sem N1 birtir fyrir stöð sína að Flugvöllum 27, 230 Reykjanesbæ (n1.is/is/eldsneytisverd) þann dag sem leigusali fyllir á ökutækið, án álagningar, að viðbættu áfyllingargjaldi að fjárhæð EUR 3040(j)

Dæmi um eldsneytishlutann eingöngu, miðað við verð sem N1 birti fyrir þá stöð 2. október 2026: 292,4 kr. á lítra af bensíni (95) og 334,5 kr. á lítra af dísilolíu, námundað að næstu krónu. Þetta eru aðeins dæmi: gjaldfært er miðað við verð N1 þann dag sem leigusali fyllir á ökutækið, og áfyllingargjald að fjárhæð EUR 30 bætist við (sbr. gr. 40(j)). Eldsneyti er verðlagt í krónum; fjárhæð sem gjaldfærð er í evrum er umreiknuð á miðgengi Seðlabanka Íslands á gjaldfærsludegi (sbr. gr. 6).

Ökutæki (eldsneyti, tankur)Lítrar í áttunda hlutaEinn áttundi hluti vantarTómur tankur
Toyota Aygo X (bensín, 35 lítrar)4,3751.279 kr.10.234 kr.
Dacia Duster 4x4 (bensín, 50 lítrar)6,251.828 kr.14.620 kr.
Dacia Duster 4x4 (dísil, 50 lítrar)6,252.091 kr.16.725 kr.
Suzuki Vitara 4x4 (bensín, 47 lítrar)5,8751.718 kr.13.743 kr.
Mitsubishi Eclipse Cross PHEV (bensín, 43 lítrar)5,3751.572 kr.12.573 kr.
Toyota Land Cruiser (dísil, 90 lítrar)11,253.763 kr.30.105 kr.
Renault Trafic, 9 sæta (dísil, 90 lítrar)11,253.763 kr.30.105 kr.

5. Hjólbarðar og framrúður

Verð á hjólbarða (sbr. gr. 40(n)). Kostnaðurinn fellur undir TWP þegar TWP á við (sbr. gr. 38).

Stærð hjólbarða (verð á hjólbarða)SumarhjólbarðiVetrarhjólbarði
14–15 tommurEUR 115EUR 140
16–17 tommurEUR 155EUR 182
18–19 tommurEUR 182EUR 210
20 tommur og stærriEUR 245EUR 280

Framrúða, endurnýjun (sbr. gr. 13). TWP nær til framrúðu sem skemmist af möl frá öðru ökutæki (sbr. gr. 38).

Stærð framrúðuÖkutækiVerð
LítilToyota Aygo XEUR 550
MiðlungsDacia Duster, Suzuki Vitara, Mitsubishi Eclipse CrossEUR 700
Stór eða lúxusToyota Land Cruiser, Renault TraficEUR 850

6. Lyklar, aukahlutir sem vantar og aðrir hlutir

HluturVerðGrein
Lykill eða fjarstýringEUR 55040(n)
Skráningarmerki (glatað)EUR 100, engin vernd nær til þessa40(n)
Barnabílstóll (ungbarnabílstóll, barnabílstóll eða bílpúði)EUR 25040(n)
Wi-Fi-búnaðurEUR 9540(n)
Wi-Fi-snúraEUR 1040(n)
Hleðslusnúra (tengiltvinnbíll)EUR 30040(n)
Skjöl ökutækis og aðrir aukahlutirSkjalfestur endurnýjunarkostnaður40(n)

Skemmdir og hlutir sem ekki eru taldir upp eru innheimtir á skjalfestum viðgerðar- eða endurnýjunarkostnaði (sbr. gr. 13). Allar fjárhæðir vegna tjóns eru háðar ákvæðum gr. 13 og, þegar vernd nær til tjónsins, sjálfsáhættunni.

7. Búnaður (verð á dag)

HluturVerðGrein
Wi-Fi-búnaður (4G)EUR 10 á dag–
Ungbarnabílstóll (0–13 kg)EUR 10 á dag23
Barnabílstóll (9–18 kg)EUR 10 á dag23
Bílpúði (15–36 kg)EUR 5 á dag23

Búnaður er háður framboði og leigutaki festir barnabílstóla sjálfur (sbr. gr. 23). Gjald fyrir aukaökumann er í 3. kafla. Ekkert dagverð er með hámarki.

Ring Road Cars ehf. · Bogatröð 1, 262 Reykjanesbær, Iceland · info@ringroadcars.is · +354 779 9499 · Gildir frá 1. ágúst 2026 · Síðast uppfært: 8. október 2026